news

Dagur íslenskrar tungu

17 Nóv 2017

Við fögnuðum degi íslenskrar tungu í Ásgarði í gær. Af því tilefni var starfsfólki Ráðhússins boðið að koma í heimsókn til okkar í sameiginlega samverustund allra hópa. Hver samverustundahópur var búinn að æfa atriði sem flutt voru fyrir samnemendur, kennara skólans og gestina úr Ráðhúsinu. Þetta var skemmtileg og notaleg stund sem við áttum saman og þökkum við gestunum okkar kærlega fyrir komuna. -err