news

Dagur leikskólans

29 Jan 2020

Verður haldin hátíðlegur um land allt fimmtudaginn 6. febrúar. Þetta er í þrettánda skipti sem haldið er upp á daginn en sjötti febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Einkunnarorð dagsins eru Við bjóðum góðan dag alla daga. Leikskólinn verður opin gestum og gangandi þennan dag fimmtudag 6. febrúar frá kl 9 – 11, kl 9:30 verður söngstund í sal og kl 10:30 ætla nemendur leikskólans sem eru í tónlistaskólanum að spila. Verið hjartanlega velkomin. glm