news

Heimsókn frá Bautzen í Þýskalandi

26 maí 2017

Í dag komu í heimsókn til okkar starfsmenn sveitarfélagsins í Bautzen í Þýskalandi. Nemendur sungu fyrir þau og var þeim kynntur leikskólinn. Tveir elstu árgangarnir fengu gjafir frá þeim og leikskólinn fékk bók og myndir teiknaðar af nemendum leikskólans í Bautzen. Takk fyrir komuna til okkar. þhþ