news

Vorhátíð:)

18 Apr 2017

Það líður að vorhátíð í Ásgarði og við hlökkum til. Foreldrum og aðstandendum er boðið á hátíð fimmtudaginn 27. apríl. Húsið opnar 14:15 en hátíðin hefst kl 14:30. Nemendur ætla að syngja nokkur lög og frumflytja meðal annars nýtt lag sem Einar Georg samdi texta við og fjallar um Grænfánaverkefnið okkar. Elstu nemendur skólans ætla að sýna leikrit undir leikstjórn Arnars. Undir lokin verða útskrifaðir 11 elstu nemendur skólans, frábærir krakkar. Þegar atriðum á svið er lokið er hægt að gæða sér á veitingum og skoða ljósmyndir og verk eftir börnin sem hanga uppi á veggjum. Hlökkum til að sjá þig:) glm