news

Kirkjuheimsókn

15 Des 2022

Á miðvikudaginn 14. desember fóru börnin á mið- og eldra stigi í kirkjuheimsókn hérna í Hvammstangakirkju. Heimsóknin gekk vel, við ræddum um jólin, sungum saman og fengum flotta kynningu á munum kirkjunnar. Það var hann Séra Magnús sem bauð í bæinn og við þökkum honum kærlega fyrir okkur.

Í lokin komum við okkur vel fyrir í safnaðarheimilinu og fengum okkur vel verðskuldaða ávexti.