news

Góður nágranni

17 Nóv 2023

Það er greinilegt að við í leikskólanum eigum alveg sérstaklega góða nágranna hérna á Garðaveginum. Í dag fengum við skemmtilega heimsókn frá henni Agnesi Magnúsdóttur. Hún kom færandi hendi og gaf leikskólanum þessi flottu pör af vettlingum fyrir litla putta. Við þökkum henni innilega fyrir okkur og það er alveg víst að þessir vettlingar munu koma að góðu gagni hér.