news

Heimsókn á sjúkrahúsið

23 Sep 2022

Á miðvikudaginn 21. September var elstu Ásgarðsbörnunum okkar boðið í skemmtilega heimsókn á sjúkrahúsið. Þangað fórum við klukkan 13:00 og var vel tekið á móti okkur af bæði heimilis- og starfsfólki. Börnunum var boðið upp á allskonar notarlegheit eins og perlur, armbandsföndur, spil og liti. Það var heldur ekki af verri kanntinum að fá að hitta dýrin á sjúkrahúsinu. Þar var bæði köttur og hundur sem nutu mikilla vinsælda og af sjálfsögðu má ekki gleyma páfagauknum Geir (eða Ágústi) og fiskunum. Eftir notarlega föndurstund var börnunum boðið upp á kaffitíma og þökkuðum við fyrir okkur með því að taka nokkur lög fyrir vini okkar í sjúkrahúsinu.

Frábær stund í alla staði og við í Ásgarði þökkum kærlega fyrir okkur.