news

Útskrift

27 Apr 2023

Þann 18. apríl var mikill hátíðardagur hjá okkur í Ásgarði, en á þessum degi voru elstu börn leikskólans formelga útskrifuð.

Útskriftin fór fram Í Félagsheimilinu á Hvammstanga og var foreldrum, systkinum og öðrum vinum og vandamönnum boðið að koma og njóta með okkur. Það fóru fram ýmis skemmtiatriði sem börnin voru búin að undirbúa eins og t.d. leikritið Pétur Pan sem þau fluttu með miklum sóma fyrir útskriftargestina. Börnin höfðu búið til brandara sem leikskólastjóri var fenginn til að lesa upp fyrir gesti og síðast voru tvö lög sungin. Eftir skemmtunina var börnunum afhent útskriftaskírteinin sín auk þess fengu þau tvö Birkitré í útskriftargjöf sem Róberta Gunnþórsdóttir afhendi þeim fyrir hönd skógræktarfélags Húnaþings vestra og erum við mjög þakklát fyrir.