news

Litlu jól í Ásgarði miðvikudaginn 4. desember

29 Nóv 2019

Þennan dag mega börnin koma í sparifötum í leikskólann ef þau vilja. Um morguninn höldum við jólaball, þá dansa börnin kringum jólatré ásamt kennurum sínum og jólasveinar kíkja í heimsókn. Í hádeginu fáum við hátíðarmat að hætti Hjördísar og síðdegis kl 14:30 bjóðum við foreldrum að koma í heimsókn til okkar og gæða sér á fagurlega skreyttum piparkökum og kakói. Hlökkum til að eiga með ykkur notalega síðdegisstund. glm