news

Þjóðleikhúsið býður á sýningu

15 Okt 2018

Næsta föstudag 19. október er auka starfsdagur í leikskólanum og börnin því heima. Þennan dag er Þjóðleikhúsið að koma hingað á Hvammstanga með sýninguna Sögustund með brúðumeistaranum Bernd Ogrodnik. Elstu nemendur leikskólans (fædd 2013) eru boðnir velkomnir á sýninguna ásamt 1. – 6. bekk grunnskóla. Sýningin fer fram í félagsheimili Hvt. kl 9. Foreldrar eru hvattir til að koma með börn sín og leyfa þeim að upplifa þessa leikhússtund. glm