news

Jólatré og Hvammurinn

06 Des 2023

Á miðvikudaginn 6. desember var ákveðið að dusta rykið af gamalli hefð ég leikskólanum. Farið var með elstu börnum leikskólans í góða veðrinu upp í Hvamm til þess að ná okkur í eitt stykki glæsilegt jólatré. Þegar búið var að velja tré og saga það, var það borið niður í kerru. Eftir alla þessa vinnu var nauðsynlegt að setjast aðeins niður og fá sér heitt kakó og smákökur.