news

Nýja kerran

19 Des 2023

Jæja þá er nýja kerran okkar komin af stað. Dugnaðarforkarnir okkar á yngrastigi láta sig ekki vanta þegar vel viðrar og skella sér í einn góðan hring með litlu krílin, enda er mjög mikilvægt að komast aðeins út frá leikskólalóðinni og kynnast nærumhverfinu.

Að vísu er kerran ansi þung og stundum geta brekkurnar tekið á!